fbpx

Kaaber - HEIMA

Prógrammið er byggt upp af 3 styrktaræfingum í viku 1 teygjuæfingu.

Við stigvaxandi aukum álagið, leggjum áherslu á góða líkamsbeitingu, að kynnast sínum líkama og hvað hann getur gert.

Styrktaræfingarnar eru samblanda af allskonar æfingum, flestar gerðar með eigin líkamsþyngd, sem bæði styrkja líkamann og fá púlsinn upp. Það eru nokkrar æfingar sem gera ráð fyrir mini band teygju og sippubandi en ef það er ekki til eða þú getur ekki sippað þá eru gerðar aðrar æfingar í staðinn. Ég mæli síðan með því líka, sérstaklega þegar líður á, að eiga eina þyngd af ketilbjöllu eða handlóði, en það er þó alls ekki nauðsynlegt, það er alltaf hægt að nota það sem er til á heimilinu til að þyngja æfingar.

Teygjuæfingarnar eru svo settar upp með það í huga að reyna að halda ákveðnum stöðum í 1-3 mínútur, lengja vöðvana og fá góða slökun.

Öll samskipti er varða æfingar fara fram í gegnum vefsíðuna eða appið sem þið notið til þess að nálgast æfingarnar, – en allar æfingar eru linkaðar myndböndum þar sem ég sýni framkvæmd og útskýri.

Samskipti hópsins fer fram í gegnum facebook grúppu. Ég mun svo reglulega senda inn fróðleik, hvatningu til að halda ykkur á sporinu og fara yfir markmiðasetningu.

Ég vil að þið náið árangri, ég vil að hreyfing verði partur af ykkar daglegu rútínu. Ég vil að hugsunarhátturinn gagnvart hreyfingu og mataræði sé heilbrigður og feli ekki í sér neinar refsingar eða skammir. Ég vil að þú talir jákvætt og fallega um þig og að þú sért tilbúin að takast á við skemmtilegar og krefjandi áskoranir samhliða prógraminu. 

Hópurinn er hugsaður fyrir þau sem hafa gaman af lífinu, hafa gaman af því að hreyfa sig, er metnaðarfullt fyrir sjálfu sér og getur hvatt aðra í sömu stöðu til að gera vel og enn betur.

Verðið er 16.990 kr 1 mánuður, 14.990 kr á mánuði ef þú tekur 3 mánuði, 12.990 kr á mánuði ef þú tekur 6 mánuði.